Upplýsing varð til 1. janúar 2000 við sameiningu íslenskra bókavarðafélaga og er fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða, m.a. með það að markmiði að gangast fyrir faglegri umræðu, efla skilning á mikilvægi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva í þágu menningar, menntunar og vísinda og efla samvinnu þeirra.
Skrifstofa Upplýsingar
Pósthólf 8865 | 128 Reykjavík
Sími: 864-6220
Tölvupóstfang: [email protected]
Veffang: www.upplysing.is
[Bokin] – póstlisti Upplýsingar
Þann 6. febrúar 2003 stofnaði stjórn Upplýsingar aðgangsstýrðan póstlista [email protected] fyrir félagsmenn. Listinn er m.a. ætlaður til að auglýsa viðburði á
vegum félagsins og til að senda upplýsingar til félagsmanna. Ennfremur
stendur listinn félagsmönnum opinn sem umræðugrundvöllur um málefni
félagsins og um bókasafns- og upplýsingamál almennt.
Félagsmenn Upplýsingar er eindregið hvattir til að skrá sig á listann en
með skráningarforminu geta áskrifendur einnig uppfært upplýsingar um
sig, komist í samband við stjórnanda póstlistans og afskráð sig.
Árið 2000 var efnt til hugmyndasamkeppni um merki fyrir Upplýsingu.
Á fyrsta aðalfundi félagsins sama ár var Aðalbjörgu Þórðardóttur afhent bókaverðlaun fyrir hugmynd sína að merki fyrir félagið. Stjórn félagsins gekk síðan til samstarfs við höfundinn um frekari útfærslu á merkinu m.a. fyrir bréfagögn þess.
Merki var tilbúið til notkunar í endanlegri útgáfu í ársbyrjun 2001. Það er í rústrauðum lit og prýðir vef félagsins. Merkið er einnig notað á allt kynningarefni félagsins, s.s. penna, barmmerki og minnisblokkir.
Merkið var tilnefnt til sem eitt af fimm bestu vöru- og firmamerkjum árins 2001 í keppni ÍMARK (Félag íslensks markaðsfólks) og Sambands íslenskra auglýsingastofa. Tilnefningin staðfestir að merki Upplýsingar er meðal þess besta á sviði einkennismerkja hér á landi.
Aðalbjörg hannaði einnig mynd á forsíðu vefs Upplýsingar.
Tæknilegar upplýsingar um merkið.
Merki í lit: Pantine: 201
Process litur, tímarit: 0, 100, 65, 35
Preocess litur, dagblöð: 0, 100, 65, 15