Ritstjórnarstefna 

Ritnefnd Bókasafnsins leggur áherslu á að birta bæði vandað og fjölbreytt efni í tímaritið meðal annars:

  • Fræðilegar greinar
  • Almennar og eða fræðandi greinar
  • Ráðstefnur – málþing
  • Viðtöl – umræður – skoðanaskipti
  • Stuttar bókmenntatengdar greinar
  • Umsagnir um rit sem á einhvern hátt snerta fagið
  • Minningargreinar
  • Ljóð, hækur, örsögur eða smásögur
  • Smælki eða myndir til að fylla upp í og krydda

Mikilvægt er að í tímaritinu sé fjallað um öll svið sem falla undir bókasafns- og upplýsingafræði, svo sem skólabókasöfn, almenningsbókasöfn, rannsóknarbókasöfn og bókasöfn stofnana og fyrirtækja, skjalastjórn, skjalavörslu eða upplýsingamál almennt. Við munum að fjalla um þær tæknilegu og samfélagslegu breytingar sem geta haft áhrif á fagið og þá starfsemi sem það tengist. Horfum bæði til fortíðar og framtíðar og tökum púlsinn á samtímanum.

Ábendingar um spennandi efni og höfunda eru vel þegnar sem og aðrar ábendingar er varða útgáfuna.