Nú styttist í næsta Morgunkorn Upplýsingar en það fer fram fimmtudaginn 18. nóvember nk. kl. 8:30. Þá bregðum við okkur norður í land þar sem þær Hrönn Björgvinsdóttir og Svala Hrönn Sveinsdóttir á Amtsbókasafni Akureyrar munu fræða okkur um starf safnsins, en það hefur vakið sérstaka athygli fyrir vel heppnaða markaðsetningu á samfélagsmiðlum. Svala og Hrönn sjá um líflega Instagram- og TikTok-reikninga Amtsbókasafnsins. Þær segja frá því hvernig safnið notar miðlana, stefnu og markmiðum safnsins á þessum vettvangi og sýna auk þess nokkur dæmi og gefa ýmis ráð.

Morgunkornið verður í streymi og verður tengill á streymið birtur hér á vefnum svo og í Facebook-viðburðinum hér að neðan.