Næsta Morgunkorn Upplýsingar verður haldið fimmtudaginn 18. janúar kl 8:30 – 9:45 í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík.

Fulltrúar frá Landskerfi segja okkur frá ferlinu við undirbúning og framkvæmd útboðs á nýju bókasafnskerfi sem verður arftaki hugbúnaðarins að baki Gegni. Farið verður yfir stöðuna eins og hún er í dag og dregin upp mynd af væntanlegri framvindu verkefnisins á næstu mánuðum. Einnig verður rætt með hvaða hvaða hætti söfnin munu hafa aðkomu að verkefninu á næstu mánuðum.

Dagskrá:

· Tímalína verkefnisins og helstu áfangar þess
· Niðurstöður sérfræðihópa og gerð kröfulýsingar
· Aðkoma safna
· Spurningar og svör

Morgunkorninu verður að venju, streymt beint á YouTube og munum við auglýsa tengil á Facebooksíðu Upplýsingar sem og á póstlistanum okkar – Bokin.

Aðgangur að Morgunkorni er GJALDFRJÁLS fyrir félagsmenn, aðrir greiða 1000kr.
Sendið tölvupóst á [email protected] fyrir greiðsluupplýsingar.
Vekjum athygli á að stofnanaaðild í félaginu gefur stofnun kost á að senda einn starfsmann frítt á Morgunkorn.

Skráningu lýkur kl 16:00 þriðjudaginn 16. janúar. 
Smellið hér til að skrá ykkur.