Bókasafnsdagurinn 7.september 2018

Lestur er bestur – fyrir vísindi

Taktu þátt

Markmið bókasafnsdagsins er tvíþætt:

  1. Að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu
  2. Vera dagur starfsmanna safnanna.

Dagurinn okkar

Bókasafnsdagurinn er dagur þeirra sem starfa á bókasöfnunum. Við hvetjum öll bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar til þess að vera með. Ekki gleyma því að njóta dagsins og gera eitthvað fyrir eða með starfsmönnum.

Lestur er bestur

Mikilvægi lesturs og læsis er óumdeilanlegt. Bókasöfnin eru einn af hornsteinum lestrarmenningar Íslands og þess vegna leggjum við áherslu á læsi í slagorði bókasafnsdagsins: Lestur er bestur

Mikilvægi bókasafna þágu vísinda

Bókasafnsdagurinn í ár er tileinkaður vísindum af öllum toga Hvað eru vísindi?  Þemanu í ár er sérstaklega ætlað að ná til allra bókasafnstegunda Vísindin eiga heima á bókasafninu.

Dagskrá bókasafnsdagsins 7.september 2018

Morgunkorn á bókasafnsdaginn

Að venju verður haldið sérstakt morgunkorn að morgni bókasafnsdagsins þar sem félagsmenn Upplýsingar og starfsmenn bókasafna koma sama, halda upp á bókasafnsdaginn, þiggja léttar veitingar og hlusta á erindi í tilefni dagsins. 

Að þessu sinni verður Morunkornið haldið í sal Þjóðarbókhlöðunnar. Þar heldur Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor, erindi í tilefni dagsins.

Við hefjum gleðina á morgunkaffi kl.8:30 en dagskráin sjálf hefst 8:45. 

Frekari upplýsingar um morgunkornið, skráning og tengill á streymi af fundinum verður birt hér þegar nær dregur, á Facebook og póstlista Upplýsingar

Viðburðir á bókasöfnum 

Rík hefð er komin á að brjóta upp daginn og bjóða upp á einhverskonar uppákomur, viðburði eða sérstaka þjónustu í tilefni af bókasafnsdeginum fyrir gesti safnsins. 

Í ár verður leitast sérstaklega við því að safna saman slíkum uppákomum og birta í viðburðarlista á bokasafn.is til þess að auðvelt sé að kynna dagskrá fyrir áhugasömum gestum.

Skoðaðu hugmyndir að viðburðum hér

Vinsamlegast látið vita af þeim viðburðum sem ráðgerðir eru á ykkar söfnum með því að skrá dagskráliði hér.  Dagskrá safna verður kynnt almenningi á bokasafn.is 

 

Hver er uppáhalds vísindabókin þín?

Bókasafnsdagurinn í ár er tileinkaður vísindum af öllum toga. Af því tilefni biðjum við starfsfólk bókasafna að velja uppáhalds vísindabækurnar sínar.
Tilnefna bók

Veggspjald og kynningarefni bókasafnsdagsins

Frjálst er að nota kynningarefni fyrir bókasafnsdaginn á öllum miðlum og vefsíðum.

ATHUGIÐ: Í ár verða prentaðar blöðrur í litlu upplagi. 

Sigga Rún

Hönnuður veggspjald Bókasafnsdagsins 2018

Sigga Rún er grafískur hönnuður, teiknari og móðir. „Ég er einnig áhugamanneskja um ímyndunarafl og reyni að gera mistök reglulega. Ég útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2012 og hef starfað sem grafískur hönnuður og teiknari síðan þá.“

http://www.siggarune.com

Veggspjaldið er innblásið af vísindum Nikola Tesla og „þráðlausu“ ljósaperunni sem hann fann upp. 

Samfélagsmiðlar

Bókasafnsdagurinn nýtir samfélagsmiðla til hins ýtrasta til þess að vekja athygli á deginum og starfi bókasafna. Hér má sjá upplýsingar um net- og samfélagsmiðlar sem notaðir verða á vegum bókasafnsdagsins og hvernig söfn geta nýtt sér þá. Það er von undirbúningsnefndar að með samstilltu samfélagsmiðlaátaki muni okkur takast að gera Bókasafnsdaginn og bókasöfnin sjálf sýnileg enda er annað markmið dagsins að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu. Spurningar, tillögur eða annað sem við kemur samfélagsmiðlum og vefjum beinist til vefstjóra.

Taktu þátt á samfélagsmiðlun með því að nota myllumerki dagsins.

#bokasafnsdagurinn

Við hvetjum alla, unga sem aldna að tengjast á þeim miðlum sem þeir stunda

Hugmyndir

Hugmyndir af uppákomum á bókasafnsdaginn

  • Blása og hengja upp marglitar blöðrur til að skapa stemningu eins og í afmæli 
  • Upplestur fyrir börn/fullorðna
  • Hengja upp gátur/spurningar með textum úr bókum þar sem giska á hvaða bók þetta er
  • Bjóða í kaffi og bakkelsi
  • Ljóðaupplestur
  • Bjóða gestum að taka þátt í að skrifa sögu (samskrif)
  • Hafa kynningu á ákveðnum höfundum/bókaflokki
  • Skipuleggja að hafa fundi svo sem bókaklúbba þennan dag
  • Lifandi tónlist
  • Opin námskeið
  • Bjóða gestum í skoðunarferðir „baksviðs“ 
  • Bókmenntagöngur/bókmenntaumfjöllun
  • Skemmtun
  • Starfsmenn mæla með uppáhalds eða að þeirra mati merkilegum fræðibókum
  • Bókapakkar fyrir börn og fullorðna með fræðibókum  t.d. „Fróði fræðimaður“ lánar spennandi bókapakka
  • Vísindalegar staðreyndir og/eða fáránlegu fróðleikur prentað út og hengt upp á söfnunum.
  • Auglýsa frí kynningarskírteini
  • Auglýsa og halda örnámskeið á söfnunum á bókasafnsdaginn til að kynna starfsemi safnanna,  eins og leshringi o.fl.
  • Nýta sjónvarpskjáina til að kynna safnið eða bækur. T.d. að láta rúlla myndir af skemmtilegum myndum af öllu sem tengist bókum, bóklestri, bókasöfnum, bókaföndri, bókabílum o.s.frv.
  • Sérstakar uppákomur/efni á vefsíðu í tilefni dagsins
  • Gefa bókamerki / lestrardagbækur
  • Lestrarátak á safninu (hvað verða lesnar margar síður inni á bókasafninu á bókasafnsdeginum?)
  • Samkeppni um slagorð fyrir bókasöfn
  • Gefins bækur (þeir sem hafa sölubás gætu gefið þær þennan daginn)
  • Spurningakeppni (ekki pubquiz heldur libquiz)
  • Bjóða bæjarráðsmönnum/sveitastjóramönnum í formlega heimsókn
  • Setja einhver met innan safnsins
  • Brandarakeppni
  • Bjóða upp á að skrifa bréf til bókasafnsins sem hengt verður upp
  • Bjóða viðskiptavinum að koma kjósa 100 bestu bækurnar/ uppáhalds íslensku bókina sína / uppáhalds handbókina
  • Sýning á gömlum munum, bókum og fleiru tengdu fyrri árum bókasafnsins
  • Myndlistasýning
  • Bókmenntagetraun
  • Sektarlaus dagur
  • Viðhorfskannanir
  • Fræðibókaþema, leggja áherslu á fræðibækur og stilla út fræðibókum.
  • Fá bókaútgefanda til þess að gefa verðlaun í happdrætti/spurningaleik

Undirbúningsnefnd Bókasafnsdagsins 2018

Fulltrúi og formaður Upplýsingar

Kristjana Mjöll

Upplýsingafræðingur, Landsbókasafn-Háskólabókaafn

Arna Emilía Vigfúsdóttir

Bókasafns- og upplýsingafræðingur, Bókasafn Menntaskólans í Reykjavík

Arnfríður Jónasdóttir

Deildarbókavörður, Menningarhús Kringlunni

Margrét Björnsdóttir

Forstöðumaður skólasafnaþjónustu, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur

Edda Hrund Svanhildardóttir

Bókasafns- og upplýsingafræðingur, viðburðastjóri, Bókasafn Hafnarfjarðar

Vef- og miðlastjóri Upplýsingar

Óskar Þór Þráinsson

Verkefnastjóri, Mosfellsbær

Margrét Sigurgeirsdóttir

Forstöðumaður, Bókasafn Garðabæjar

Hilma Gunnarsdóttir

Upplýsingaþjónusta og notendafræðsla, Landsbókasafn-Háskólabókasafn

Hafðu samband