Upplýsing boðar til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 18. maí nk. Fundurinn hefst kl 17:00 og er haldinn í Menningarhúsinu Gerðubergi.

Stjórn félagsins óskar eftir tilnefningum í lagabreytingarnefnd og einnig tökum við á móti tilnefningum um heiðursfélaga Upplýsingar. Tilnefningar má senda á [email protected].

Við biðjum ykkur að skrá ykkur á aðalfund með því að smella hér. 

Skráningu lýkur kl 12. á hádegi þriðjudaginn 16. maí.

Hér að neðan má sjá tilvísun í 8.gr. laga félagsins um aðalfund og mun dagskráin vera eins og hún kemur fyrir þar. 

8. gr. – Aðalfundur

Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Til hans skal boðað skrif­lega með minnst tíu daga fyrirvara. Fundarboðinu fylgi dag­skrá fundarins, ásamt tillögum um laga­breyt­ingar, ef ein­hverjar eru.

Dagskrá aðalfundar:

a) Skýrsla stjórnar.

b) Skýrslur hópa og nefnda.

c) Reikningar félagsins.

d) Ákvörðun launa og þóknunar til stjórnarmanna.

e) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.

f) Árgjald.

g) Lagabreytingar.

h) Kosning stjórnar og varamanna, sbr. 5 gr.

i) Kosning skoðunarmanna reikninga.

j) Kosning í fastanefndir til tveggja ára í senn.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar.