Kennsluvefur í upplýsingalæsi |
|||||||||||||||||||||||
|
Um vefinnTilgangurinn með vefnum er að nemendur hafi aðgengilegar upplýsingar um hvernig best skuli staðið að upplýsingaleit og úrvinnslu upplýsinga. Einnig verður hægt að nota vefinn almennt sem hjálpartæki við kennslu og/eða sjálfsnám í upplýsingaleit og upplýsingalæsi. Sjá nánari skilgreiningu á upplýsingalæsi. Bókasafns- og upplýsingafræðingar í fimm skólum tóku að sér að vinna verkið fyrir hönd Samstarfshóps bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum. Þær Ásdís H. Hafstað Menntaskólanum við Hamrahlíð, Bára Stefánsdóttir Borgarholtsskóla, Nanna Lind Iðnskólanum í Hafnarfirði, Þórdís T. Þórarinsdóttir Menntaskólanum við Sund og Þórunn Snorradóttir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Vefurinn byggir á sænskum kennsluvef, Biblioteksguiden, sem hefur verið þýddur og aðlagaður að íslenskum aðstæðum, ásamt töluverðum viðbótum. Vinnuhópurinn fékk styrk frá Menntamálaráðuneytinu til verksins. Vinna hófst vorið 2003 og var vefurinn opnaður um vorið árið eftir. Uppruni vefsinsVefur þessi var upphaflega unninn fyrir háskólabókasöfnin í Umeå og Örebro í Svíþjóð. Höfundar vefsins og rétthafarEftirtaldir aðilar eru höfundar vefsins, bera ábyrgð á efni hans og eiga höfundarétt á verkinu ásamt upprunalegum höfundum í Umeå og Örebro. Ásdís H. Hafstað Styrktaraðilar:Menntamálaráðuneytið
|
||||||||||||||||||||||
Íslensk útgáfa: |
|
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||