Kennsluvefur í upplýsingalæsi

Kafli 4
Heimildavinna og ritgerðasmíð
 

Forsíða

Kafli

Leiðsögn um bókasöfn
Netið sem heimild
Hvar er upplýsingar að finna?
Trúverðugleiki heimilda
Gagnasöfn
Höfundaréttur og siðfræði
Heimildavinna og ritgerðasmíð
Upplýsingalæsi
 
Kafli 4
1. Heimildavinna
2. Heimildaskráning
3. Skilgreiningar á ritsmíðum
4. Bækur og vefsíður um ritgerðasmíð
 

3. Skilgreiningar á ritsmíðum

Þegar kemur að birtingu ritgerðar er mikilvægt að taka mið af þeim reglum sem gilda fyrir viðkomandi áfanga, deild eða skóla. Slíkar upplýsingar ættu að fylgja með þegar ritgerðarefnum er deilt út eða með kennsluáætlunum viðkomandi áfanga.

Venjulega eru ritgerðir prentaðar og ljósritaðar ef dreifa þarf eintökum í tengslum við fyrirlestra eða kynningu á verkefninu. Það verður þó sífellt algengara að ritgerðir og verkefni séu birt á þar til gerðri vefsíðu eða í það minnsta útdrættir.

Birting ritgerðar er á ábyrgð kennara, nemenda og skóla og því er mikilvægt að allir geri sér grein fyrir sínum ábyrgðarhluta og virði þær reglur sem almennt gilda.

Blaðagrein - Afmarkaður texti í tímariti eða dagblaði.

Doktorsritgerð eða vísindaritgerð - Lokaritgerð sem verja þarf opinberlega til að ljúka doktorsprófi.

Einefnisritgerð - Vísindaleg ritgerð um eitt afmarkað efni.

Gagnrýni eða ritrýni - Skrifleg gagnrýni á ritgerð, verkefni eða grein.

Heimildaritgerð - Skrifleg samantekt um tiltekið efni byggð á heimildum.

Lokaritgerð - Ritgerð eða verkefni sem unnið er til þess að ljúka tiltekinni menntun eða tilteknum menntunaráfanga.

Ritdómur - Fagleg úttekt og dómur um bók, kvikmynd eða annað efni.

Ritgerð – Persónuleg ritgerð eða grein með persónulegu svipmóti sem lýsir persónulegum viðhorfum höfundar.

Skýrsla - Greinargerð vegna athugana, tilrauna eða rannsókna.

Veggspjald - Spjald með myndum og textum oftast fyrir kynningar eða ráðstefnur.

 

 

Næsta síða Upp Næsta síða

 

Íslensk útgáfa:
Ásdís H. Hafstað
Bára Stefánsdóttir
Nanna Lind
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Þórunn Snorradóttir
Styrktaraðilar: Menntamálaráðuneytið
© Biblioteksguiden för studerande og íslenskir höfundar 2004
Síðast uppfært 4. janúar 2011
Um vefinn