Kennsluvefur í upplýsingalæsi |
|
||||||||||||||||||||||||||||
|
3. Helstu tegundir bókasafnaBókasöfnum er yfirleitt skipt í eftirfarandi flokka:
Grunnskóla- og framhaldsskólasöfn eru oft kölluð einu nafni skólasöfn. Rannsóknarbókasöfn eru stundum kölluð sérfræðibókasöfn. Háskólabókasöfn og þjóðbókasöfn teljast til rannsóknarbókasafna. Almenningsbókasöfn hafa þá sérstöðu að þeim er ætlað að þjóna öllum almenningi. Almenningsbókasöfn þjóna íbúum í viðkomandi sveitarfélagi en það hefur færst í vöxt að horft sé framhjá héraðs-, sýslu-, bæjar-, eða borgarmörkum. Borgarbókasafn Reykjavíkur, Bókasafn Mosfellsbæjar og Bókasafn Seltjarnarness hafa til dæmis gert með sér samstarfssamning sem gerir það að verkum að fólk sem á gilt skírteinií einhverju þessara safna getur fengið ókeypis bókasafnsskírteini í hinum og þar af leiðandi notað söfnin jöfnum höndum eftir því hvað hentar lánþeganum hverju sinni. Skólasöfn eru að því leyti ólík almenningsbókasöfnum að þau eru aðeins ætluð nemendum og starfsmönnum viðkomandi skóla. Framhaldsskólasöfn hafa þó samstarf um millisafnalán. Öðrum utanaðkomandi aðilum er veittur lágmarksaðgangur að efni safnanna sé það er ekki í notkun í viðkomandi skóla, þ.e. söfnin láta í té aðstöðu til að kynna sér efnið og/eða viðkomandi getur fengið það á millisafnaláni. Helstu tegundir sérfræði- og rannsóknarbókasafna eru þjóðbókasöfn, háskólabókasöfn, laga- og stjórnsýslubókasöfn, hugvísinda- og listbókasöfn, náttúrufræðibókasöfn, læknisfræðibókasöfn og tæknibókasöfn. Þessi söfn eiga það sameiginlegt að miðla aðallega upplýsingum í þágu sérhæfðra stofnana, rannsókna eða verkefna. Hlutverk þeirra er að safna, varðveita og miðla upplýsingum og þekkingu, stuðla að rannsóknum og þjóna atvinnulífi og kennslu á háskólastigi. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er sjálfstæð háskólastofnun, þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er rannsóknabókasafn sem veitur upplýsingaþjónustu á sviði vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs.
|
||||||||||||||||||||||||||||
Íslensk útgáfa: |
|
|
![]() |
||||||||||||||||||||||||||