Kennsluvefur í upplýsingalæsi |
|
||||||||||||||||||||||||||||
|
2. Þjónusta framhaldsskólasafnaViðskiptavinir framhaldsskólasafnanna eru fyrst og fremst nemendur, kennarar og annað starfsfólk skólanna. Útlán eru tölvuvædd og reglur um útlán geta verið misjafnar milli safna (en algengasti útlánstíminn er tvær vikur). Nemendur geta annað hvort komið og fengið efni lánað, unnið með það á staðnum eða pantað millisafnalán. Á framhaldsskólasöfnunum er veitt öll sú upplýsingaþjónusta sem við verður komið og fólki bent á aðrar leiðir ef ekki er hægt að finna svör á staðnum. Þar má fá upplýsingar um útlán og pantanir, aðstoð við heimildaöflun, leit í gagnasöfnum o.fl. Einnig er hægt að fá upplýsingar í gegnum síma eða með því að senda tölvupóst á netfang bókasafnsins. Þegar safnið er opið er hægt að fá persónulega þjónustu í sambandi við: útlán upplýsingar millisafnalán heimildaleitir frágang verkefna Til þess að sjá hvort að bókasafnið á tiltekna bók eða aðra heimild og hvar hana er að finna er hægt að leita í Gegni (samskrá íslenskra bókasafna) eða í bókasafnskerfi viðkomandi safns eftir því sem við á. Þar sést einnig hvort að bókin er í útláni og hægt er að panta bók eða framlengja lán. Aðgangur að Gegni er öllum opinn sem hafa nettengda tölvu. Nokkur framhaldsskólasöfn hafa gert leit í bókasafnskerfum sínum aðgengilega á Netinu en önnur ekki. Útlán Námsbækur eru almennt ekki lánaðar út og það sama á við um handbækur þær eru eingöngu til afnota innan skólans. Fjarnemar og utanskóla nemar hafa sömu réttindi og möguleika á að fá lánað eins og aðrir nemendur. Tímarit eru almennt ekki lánuð út en hægt að ljósrita eða panta ljósrit af tiltekinni grein. Flest framhaldsskólasöfn eru með upplýsingar um tímarit í áskrift á vef bókasafnsins. Áskrift að rafrænum tímaritum er í gegnum Hvar.is og hugsanlega fleiri á viðkomandi safni. Til þess að athuga hvort að tiltekin bók, tímarit eða annað efni er til annars staðar á landinu er hægt að leita í Gegni á Netinu. Tölvuaðstaða Á bókasöfnum skólanna eru tölvur til afnota fyrir nemendur og í flestum tilvikum hafa nemendur aðgang að tölvuveri í skólanum. Námsráðgjafi veitir upplýsingar um tölvuaðstöðu og aðra þjónustu fyrir fatlaða nemendur.
|
||||||||||||||||||||||||||||
Íslensk útgáfa: |
|
|
![]() |
||||||||||||||||||||||||||